← Öll fyrirtækjanámskeið

Gervigreindarnámskeið fyrir fólk í bókhaldi

Gervigreind í starfi · Bókhald

Betri yfirsýn. Skýrari vinnubrögð.

Fyrir bókhaldsstofur, fjármáladeildir og starfsfólk sem vinnur með tölur og gögn. Við skoðum hvernig gervigreind getur aðstoðað við töfluvinnu, samantektir og skýringar í daglegu starfi.

Skoða námskeið og pakka

Vinna með reiknivél og gögn við skrifborð
Ljósmynd: Unsplash
Hvað getið þið nýtt í starfi?

Verkefni sem þið þekkið.

01

Töflur og gagnavinna

Fáið aðstoð við að skilja og skrifa formúlur, samræma framsetningu gagna og útbúa tillögur að yfirferð á töflum.

02

Skýrari samantektir

Breytið yfirförnum niðurstöðum í læsilegar skýringar fyrir stjórnendur og viðskiptavini. Aðgreinið tölulegar staðreyndir frá túlkun.

03

Samskipti og gátlistar

Útbúið drög að beiðnum um gögn, verklýsingum og gátlistum fyrir endurtekin verkefni.

Svona gæti æfing á námskeiðinu litið út

Við vinnum með tilbúið gagnasafn, skoðum töfluformúlu og útbúum stutta samantekt á niðurstöðum. Síðan berum við svörin saman við upprunagögnin og yfirförum útreikningana.

Námskeiðið fjallar um vinnubrögð, ekki skattalega eða reikningshaldslega ráðgjöf. Við notum tilbúin eða ópersónugreinanleg gögn og yfirförum tölur, formúlur og niðurstöður áður en þær eru notaðar.

Veljið leið sem hentar ykkar teymi

Stutt grunnnámskeið, námskeið með eftirfylgni eða verkefnavinna og ráðgjöf. Við aðlögum verkefnin að ykkar starfsemi.

Öll verð og nákvæmt umfang eru á einum stað í sameiginlegu pakkayfirliti.

Skoða pakka og verð

Bóka 30 mínútna samtal · stefanatli93@gmail.com · 775-7221