LÆRUM MEÐ ÞVÍ AÐ GERA
Vinnustofur sem skila einhverju heim
Takið eigin verkefni með og vinnum þau saman. Ég leiði hópinn í gegnum hagnýtar æfingar, hjálpa til við útfærsluna og við prófum niðurstöðurnar á staðnum.
Vinnustofurnar henta litlum teymum og deildum. Við veljum viðfangsefni fyrir fram svo vinnan tengist því sem þið þurfið að gera í alvörunni.
BETRI VINNUDAGUR
Gervigreind í ykkar starfi
Komið með endurtekin verkefni úr vinnudeginum og finnið hagnýtar leiðir til að vinna þau með hjálp gervigreindar.
- Veljum tvö til þrjú verkefni fyrir hópinn.
- Vinnum í litlum hópum með eigin dæmi og prófum fyrirmæli.
- Bætum niðurstöður og ræðum hvernig á að yfirfara þær.
Þið takið með ykkur: sameiginlegt safn af prófuðum fyrirmælum og vinnusniðmátum fyrir verkefnin sem unnið var með.
Ræðum vinnustofuFRÁ HUGMYND AÐ EFNI
Efnisgerð með gervigreind
Fyrir markaðs- og söluteymi sem vilja vinna efni fyrir raunverulega vöru, þjónustu eða herferð.
- Skilgreinum markhóp, skilaboð og tón.
- Vinnum að textum, myndhugmyndum og efnisáætlun.
- Förum saman yfir efnið og aðlögum að vörumerkinu.
Þið takið með ykkur: drög að einni efnisáætlun og þrjú efnisdrög, ásamt fyrirmælum til að halda vinnunni áfram.
Ræðum efnisvinnustofuEINFALDARI VERKFERLAR
Frá handavinnu að sjálfvirkni
Fyrir teymi sem vilja finna hvar sjálfvirkni getur létt undir og móta fyrstu lausnina saman.
- Teiknum upp einn verkferil eins og hann er í dag.
- Veljum skref sem má einfalda eða sjálfvirknivæða.
- Mótum lausn og prófum hugmyndina með sýnidæmi.
Þið takið með ykkur: kort af endurbættum verkferli og framkvæmdaáætlun fyrir eina sjálfvirkni. Uppsetning í rekstri er sérverkefni.
Ræðum verkferlavinnustofuSérsniðin vinnustofa fyrir ykkar teymi. Umfang, hópastærð, lengd og afurðir eru ákveðin fyrir fram. Tilboð er gert fyrir vinnustofuna í heild, með undirbúningi, leiðsögn og afhendingu vinnugagna.
Þátttakendur hafa með sér fartölvu og aðgang að þeim verkfærum sem eru ákveðin fyrir fram. Unnið er með sýnigögn eða gögn sem heimilt er að nota. Hugbúnaðaráskriftir og ferðakostnaður, ef við á, eru tilgreind sérstaklega í tilboði. Verð er gefið upp + vsk.
Skipuleggjum vinnustofu fyrir ykkar teymi
Sendu mér upplýsingar um hópinn og verkefnin sem þið viljið vinna með. Við mótum vinnustofu sem hentar ykkur.
Fá tilboð í vinnustofu