Fyrir hótel, gististaði, ferðaskipuleggjendur og önnur fyrirtæki í ferðaþjónustu. Ég sýni ykkur hvernig hægt er að nýta ChatGPT og önnur gervigreindartól í gestasamskiptum, efnisgerð og skipulagningu.
Útbúið drög að svörum við algengum fyrirspurnum, upplýsingum fyrir komu og eftirfylgni eftir dvöl. Aðlagið tón og tungumál að gestinum.
02
Ferðalýsingar og kynning
Vinnið úr staðfestum upplýsingum um ferðir og gistingu yfir í skýra veftexta, fréttabréf og færslur á samfélagsmiðla.
03
Skipulag og yfirsýn
Takið saman umsagnir, finnið endurteknar spurningar og búið til gátlista fyrir móttöku og dagleg verkefni.
Svona gæti æfing á námskeiðinu litið út
Við tökum dæmi um fyrirspurn frá gesti og útbúum svar, komuupplýsingar og stutta ferðalýsingu. Þið sjáið hvernig sömu grunnupplýsingar geta nýst á fleiri tungumálum og miðlum.
Við vinnum með tilbúin eða ópersónugreinanleg dæmi. Verð, opnunartímar, aðgengi, ferðaskilmálar og öryggisupplýsingar eru alltaf yfirfarin af starfsfólki áður en efni fer til gesta.
Veljið leið sem hentar ykkar teymi
Stutt grunnnámskeið, námskeið með eftirfylgni eða verkefnavinna og ráðgjöf. Við aðlögum verkefnin að ykkar starfsemi.
Öll verð og nákvæmt umfang eru á einum stað í sameiginlegu pakkayfirliti.