Fyrirtækjanámskeið

Ég býð upp á hagnýt gervigreindarnámskeið fyrir fyrirtæki og teymi. Við vinnum með verkefni úr ykkar starfsemi og veljum umfang eftir reynslu hópsins og markmiðunum ykkar.

Veljið stutt grunnnámskeið eða ítarlegt námskeið með eftirfylgni. Fyrir fyrirtæki sem vilja aðstoð við greiningu og uppsetningu lausna eru sérstakir ráðgjafarpakkar í boði.

Skoða námskeið, ráðgjöf og verð ↓

Styrkir vegna námskeiða

Fyrirtæki geta sótt um styrki vegna námskeiða og starfsmenntunar í gegnum Áttina. Styrkveiting og styrkupphæð fara eftir aðild og reglum viðkomandi starfsmenntasjóðs. Kynnið ykkur skilyrðin hjá ykkar sjóði áður en námskeið er bókað.

Skoða styrki og sækja um á Áttin.is ↗

Hér að neðan má sjá umsagnir ánægðra fyrirtækja sem ég hef haldið námskeiðið fyrir.

Brot af fyrirtækjum sem hafa nýtt þjónustu mína

Ánægð fyrirtæki

Námskeið sem tala inn í ykkar starf.

Veljið ykkar geira og skoðið hvernig gervigreind getur nýst í verkefnum sem þið þekkið.

Gervigreind í starfi · Stefán Atli

Nýtið gervigreind í verkefnin sem skipta máli

Hvort sem þið viljið koma starfsfólkinu af stað eða skoða hvernig gervigreind getur bætt daglegan rekstur, þá hjálpa ég ykkur að finna réttu tækifærin og taka næstu skref.

Námskeið fyrir starfsfólk

Veljið stutt grunnnámskeið eða ítarlega þjálfun með eftirfylgni.

Brons

Komum ykkur af stað

190.000 kr.

án VSK

  • 2 klst. námskeið
  • Allt að 25 þátttakendur
  • 10 fyrirmælasniðmát

Hagnýtt námskeið fyrir fyrirtæki sem vilja gefa starfsfólki góðan grunn í gervigreind og hugmyndir sem nýtast strax í starfi.

Bóka brons
Sjá allt sem er innifalið í bronspakkanum
  • 30 mínútna undirbúningsfundur til að kynnast starfseminni og áherslum ykkar.
  • Tveggja klukkustunda námskeið fyrir allt að 25 þátttakendur.
  • Dæmi og æfingar sem tengjast verkefnum fyrirtækisins.
  • Kennsla í skýrri fyrirmælagjöf, yfirferð svara og ábyrgri meðferð upplýsinga.
  • Safn af 10 fyrirmælasniðmátum sem starfsfólkið getur nýtt áfram.

Að námskeiði loknu hefur starfsfólkið grunnþekkingu, hagnýt sniðmát og skýr dæmi um hvar gervigreind getur komið að gagni.

Með eftirfylgni

Gervigreind í daglegu starfi

890.000 kr.

án VSK · fyrir hópinn

  • 6 klst. kennsla og 3 klst. eftirfylgni
  • Allt að 15 þátttakendur
  • Eigin verkefni og 3 vinnusniðmát

Fyrir teymi sem vilja læra að nýta gervigreind í daglegri vinnu. Þátttakendur æfa sig á milli tíma og fá aðstoð við það sem strandar.

Ræðum námskeiðið
Sjá allt sem er innifalið í námskeiðinu
  • 60 mínútna undirbúningsfundur með tengilið fyrirtækisins. Við veljum þrjú verkefni, aðaltól og gögn sem henta í æfingarnar.
  • Tveir verklegir námskeiðsdagar, þrjár klukkustundir í senn, með um viku á milli. Kennt hjá ykkur á íslensku.
  • Þrír klukkutíma eftirfylgnitímar á Teams eða Google Meet, tveimur, fjórum og átta vikum eftir síðari kennsludaginn.
  • Þrjú sameiginleg vinnusniðmát sem við mótum í kennslunni út frá verkefnum hópsins.
  • Kennsluefni, æfingar, áætlun um áframhaldandi notkun og staðfesting á þátttöku.
  • Engin forritunarkunnátta nauðsynleg. Þátttakendur þurfa tölvu og aðgang að aðaltólinu sem við veljum í undirbúningi.

Markmiðið er að hver þátttakandi geti nýtt gervigreind í að minnsta kosti einu endurteknu verkefni, yfirfarið niðurstöðurnar og unnið sjálfstætt. Uppsetning kerfa og verkefnavinna utan kennslu eru verðlögð sérstaklega.

Verkefnavinna og ráðgjöf

Fyrir fyrirtæki sem vilja aðstoð við greiningu, vinnusniðmát og uppsetningu lausna.

Silfur

Frá hugmyndum í framkvæmd

390.000 kr.

án VSK

  • 2 vinnudagar á staðnum
  • 3 sérsniðin vinnusniðmát
  • 30 daga aðgerðaáætlun

Fyrir fyrirtæki sem vilja tengja gervigreind við ákveðin verkefni og hjálpa starfsfólki að taka ný vinnubrögð í notkun.

Bóka silfur
Sjá allt sem er innifalið í silfurpakkanum
  • 60 mínútna greiningarfundur með stjórnanda eða verkefnisábyrgðaraðila.
  • Yfirferð á allt að þremur fyrirfram völdum verkefnum eða verkferlum.
  • Tveir vinnudagar á staðnum fyrir allt að 20 þátttakendur, þar sem unnið er með raunveruleg verkefni fyrirtækisins.
  • Þrjú sérsniðin vinnusniðmát með fyrirmælum, vinnuskrefum og leiðbeiningum um yfirferð niðurstaðna.
  • Tillögur að gervigreindartólum sem henta verkefnunum.
  • Forgangsraðuð aðgerðaáætlun fyrir næstu 30 daga.
  • 60 mínútna eftirfylgnifundur innan fjögurra vikna.

Þið fáið tilbúin vinnusniðmát, prófið þau á eigin verkefnum og hafið skýra áætlun um næstu skref.

Gull

Gervigreindarvika í fyrirtækinu

990.000 kr.

án VSK

  • 5 vinnudagar á staðnum
  • Allt að 3 einfaldar lausnir
  • 90 daga aðgerðaáætlun

Ég kem inn í fyrirtækið í heila vinnuviku, kynnist daglegum verkefnum og greini með ykkur hvar gervigreind getur sparað tíma og einfaldað vinnu.

Ræðum gullpakkann
Sjá allt sem er innifalið í gullpakkanum
  • Undirbúningsfundur þar sem við skilgreinum markmið og veljum áherslusvið vikunnar.
  • Fimm samfelldir vinnudagar á staðnum, allt að 35 klukkustundir.
  • Viðtöl og vinnufundir með lykilstarfsfólki.
  • Kortlagning og greining á allt að fimm lykilverkferlum.
  • Mat á tækifærum út frá mögulegum ávinningi, fyrirhöfn og áhættu.
  • Verkleg uppsetning og prófun á allt að þremur einföldum gervigreindarlausnum í tilbúnum tólum, svo sem sérsniðnum aðstoðarmönnum, vinnusniðmátum eða stöðluðum fyrirmælum.
  • Tvær hagnýtar kennslustundir fyrir starfsfólk, allt að 90 mínútur hvor.
  • Afhendingarskýrsla með niðurstöðum, leiðbeiningum og forgangsraðaðri 90 daga aðgerðaáætlun.
  • 60 mínútna eftirfylgnifundur innan fjögurra vikna.

Í lok vikunnar hafið þið yfirsýn yfir helstu tækifærin, fyrstu lausnirnar til áframhaldandi notkunar og áætlun um hvernig þið mælið árangurinn.

Hvaða pakki hentar ykkur?

Bókum stutt samtal um verkefnin ykkar og næstu skref.

Bóka 30 mínútna samtal

Umfang og framkvæmd
Öll verð eru án VSK. Verkefni og áherslur eru ákveðin fyrir upphaf vinnu. Hugbúnaðaráskriftir, sérsmíði hugbúnaðar og flóknar kerfistengingar eru ekki innifaldar. Ferðakostnaður utan höfuðborgarsvæðisins er ákveðinn sérstaklega.

Hafið samband: stefanatli93@gmail.com · 775-7221

Á námskeiðinu var tekið mið af ólíkum forsendum þátttakenda, þar sem bæði byrjendur og þeir sem höfðu einhverja reynslu af ChatGPT sóttu námskeiðið. Allir þátttakendur nutu góðs af námskeiðinu. Byrjendur urðu áhugasamir um að kynnast ChatGPT og gervigreind nánar, á meðan þeir sem voru lengra komnir fengu innblástur til að kynna sér fleiri gervigreindarforrit og dýpka þekkingu sína. Námskeiðið var hæfilega langt, hnitmiðað og gagnlegt fyrir allan hópinn.
Lilja Björg Arngrímsdóttir
Lögfræðingur hjá VSV
Við fengum Stefán Atla til að koma og vera með námskeið um ChatGPT og önnur gervigreindartól. Námskeiðið var fróðlegt og um leið mjög skemmtilegt og lifandi. Ég mæli hiklaust með þessu námskeiði.

Jón Bjarni Kristinsson

Mannauðsstjóri Sóma & Þykkvabæjar
Jón Þór
Stefán Atli bauð upp á afar áhugaverðan fyrirlestur og opnaði augu þeirra sem ekki hafa kafað í undraveröld gervigreindar sem og þeirra sem dýft hafa einni eða fleiri tám. Get mælt hiklaust með, Stefán skraddarasneið námskeiðið að okkar starfsemi og klikkti út með skemmtilegum bónus.
Jón Þór Víglundsson
Upplýsingafulltrúi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
Námskeiðið var fróðlegt, skemmtilegt og mjög lærdómsríkt. Vel framsett, skýrt og faglegt.
Fræðslan frá Stefáni er sú besta sem ég hef fengið þegar það kemur að gervigreind. Hann toppaði sig þegar hann tók sýnidæmi um vörur frá okkur og sýndi það svart á hvítu hversu gott tól gervigreindin getur verið í hugmyndavinnu og öðru.
Úlfar Konráð Svansson
Viðskiptastjóri hjá OJK ÍSAM

Skráðu þig á póstlistann
og þú færð að vita hvenær næsta námskeið er haldið, einn heppinn einstaklingur vinnur frítt námskeið!

Ef þú skráir þig á póstlistann, þá færðu ekki einungis að vita hvenær næsta námskeið er haldið, heldur áttu möguleika á að fá það frítt, þar sem einn heppinn einstaklingur sem skráir sig á póstlistann fær frítt námskeið!