GERVIGREIND Í STARFI · STEFÁN ATLI
Gervigreind sem nýtist í rekstrinum
Minni handavinna, skýrari verkferlar og starfsfólk sem kann að nýta gervigreind. Ég hjálpa fyrirtækjum að finna réttu tækifærin og koma hagnýtum lausnum í notkun með ráðgjöf, innleiðingu og vinnustofum.
Við vinnum með raunveruleg verkefni úr ykkar starfsemi og skilgreinum hvað á að liggja fyrir þegar verkefninu lýkur.
Skoða lausnir fyrir fyrirtækiSkoða vinnustofurFRÁ TÆKIFÆRI AÐ LAUSN
Hvað viljið þið bæta?
Veljið þá leið sem hentar stöðunni hjá ykkur. Hver pakki er afmarkað verkefni með skýrum afurðum, afhendingu og verði sem er samþykkt áður en vinna hefst.
SKÝR STEFNA
Greining og aðgerðaáætlun
Fyrir fyrirtæki sem vilja vita hvar gervigreind getur nýst best og hvað borgar sig að byrja á.
- Tækifærakort: yfirferð á einu starfssviði og allt að fimm verkefnum sem má einfalda.
- Forgangsröðun: mat á ávinningi, fyrirhöfn og forsendum.
- Ráðleggingar um verkfæri: hvað hentar verkefnunum og núverandi vinnuumhverfi.
- 30 daga aðgerðaáætlun: skýr næstu skref, ábyrgð og viðmið um árangur.
Þið fáið: skriflega áætlun sem hjálpar ykkur að velja fyrstu skrefin.
Tilboð eftir umfangi · Verð + vsk.
Fá tilboð í greininguÍ DAGLEGA NOTKUN
Innleiðing gervigreindar
Fyrir lítil teymi sem vilja taka gervigreind í notkun með samræmdum vinnubrögðum og hagnýtri þjálfun.
- Eitt afmarkað notkunartilvik: við veljum verkefni og skilgreinum árangursviðmið.
- Uppsetning í völdu verkfæri: vinnuumhverfi og allt að þrjú sérsniðin fyrirmæla- eða vinnusniðmát.
- Þjálfun teymis: sameiginleg yfirferð með dæmum úr ykkar starfi.
- Leiðbeiningar og eftirfylgni: skrifleg verklýsing, einn eftirfylgnifundur og ein umferð lagfæringa.
Þið fáið: prófaða leið til að vinna ákveðið verkefni og teymi sem hefur fengið þjálfun í að nota hana.
Tilboð eftir umfangi · Verð + vsk.
Ræðum innleiðinguMINNI HANDAVINNA
Verkferlar og sjálfvirknivæðing
Fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda endurtekin verkefni og draga úr handvirkum flutningi upplýsinga.
- Kortlagning eins verkferils: frá því að verkefni berst þar til það er afgreitt.
- Endurbætt verklag: skýr skref, ábyrgð og staðir þar sem yfirferð er nauðsynleg.
- Ein einföld sjálfvirkni: uppsetning með tilbúnum tengingum milli allt að tveggja kerfa, að undangenginni athugun á tæknilegum forsendum.
- Prófun og afhending: prófun með dæmum, skriflegar leiðbeiningar og ein umferð lagfæringa.
Þið fáið: afmarkaða, prófaða sjálfvirkni og leiðbeiningar um notkun og eftirlit.
Tilboð eftir umfangi · Verð + vsk.
Skoðum verkferlanaPakkarnir eru verðlagðir eftir samþykktu umfangi og afurðum. Fjöldi notenda, kerfi og flækjustig eru metin áður en tilboð er gert. Frekari innleiðing eða viðbótarlausnir eru skilgreindar sérstaklega.
Vinnustofur fyrir teymi
Vinnið með eigin verkefni og takið með ykkur prófuð vinnusniðmát, efnisdrög eða áætlun um sjálfvirkni.
Skoða vinnustofurDæmi um verkefni sem við getum skoðað
- Fyrirspurnir og eftirfylgni: skráning erinda, flokkun og drög að svörum til yfirferðar.
- Fundir og verkefni: vinnsla fundarpunkta í samantektir og verkefnalista.
- Markaðsefni og sala: samræmd vinnusniðmát fyrir vörutexta, kynningar og efnisáætlanir.
- Gögn og skýrslur: einfaldari söfnun upplýsinga og reglulegar samantektir.
Rétta lausnin fer eftir kerfunum ykkar, gögnunum og því hvernig þið vinnið í dag.
Svona vinnum við saman
- Við skilgreinum vandann. Hvaða verkefni tekur of mikinn tíma eða veldur óþarfa flækjum?
- Þið fáið skýrt tilboð. Afurðir, umfang, afhending og verð eru ákveðin fyrir fram.
- Við prófum og afhendum. Lausnin er yfirfarin með ykkur og þið fáið leiðbeiningar til að nýta hana áfram.
Hugbúnaðaráskriftir, leyfisgjöld og rekstur sjálfvirkni eru ekki innifalin. Sérsmíði hugbúnaðar og flóknar kerfistengingar eru metnar sérstaklega. Ferðakostnaður, ef við á, er ákveðinn fyrir fram.
Þarftu staka ráðgjöf?
Ef þú vilt fá aðstoð við ákveðið verkefni, fara yfir hugmynd eða læra að nýta verkfæri betur er líka hægt að bóka stakan ráðgjafartíma.
24.900 kr. + vsk. á klukkustund.
Óska eftir ráðgjafartímaHvaða verkefni getum við einfaldað hjá ykkur?
Sendu mér stutta lýsingu á verkefninu og hvaða kerfi þið notið. Við skoðum hvaða leið hentar og hvað þarf til að koma henni í framkvæmd.
Ræðum verkefniðViltu námskeið fyrir hópinn? Skoðaðu fyrirtækjanámskeiðin.