Vinnustofa

LÆRUM MEÐ ÞVÍ AÐ GERA

Vinnustofur sem skila einhverju heim

Takið eigin verkefni með og vinnum þau saman. Ég leiði hópinn í gegnum hagnýtar æfingar, hjálpa til við útfærsluna og við prófum niðurstöðurnar á staðnum.

Vinnustofurnar henta litlum teymum og deildum. Við veljum viðfangsefni fyrir fram svo vinnan tengist því sem þið þurfið að gera í alvörunni.

BETRI VINNUDAGUR

Gervigreind í ykkar starfi

Komið með endurtekin verkefni úr vinnudeginum og finnið hagnýtar leiðir til að vinna þau með hjálp gervigreindar.

  • Veljum tvö til þrjú verkefni fyrir hópinn.
  • Vinnum í litlum hópum með eigin dæmi og prófum fyrirmæli.
  • Bætum niðurstöður og ræðum hvernig á að yfirfara þær.

Þið takið með ykkur: sameiginlegt safn af prófuðum fyrirmælum og vinnusniðmátum fyrir verkefnin sem unnið var með.

Ræðum vinnustofu

FRÁ HUGMYND AÐ EFNI

Efnisgerð með gervigreind

Fyrir markaðs- og söluteymi sem vilja vinna efni fyrir raunverulega vöru, þjónustu eða herferð.

  • Skilgreinum markhóp, skilaboð og tón.
  • Vinnum að textum, myndhugmyndum og efnisáætlun.
  • Förum saman yfir efnið og aðlögum að vörumerkinu.

Þið takið með ykkur: drög að einni efnisáætlun og þrjú efnisdrög, ásamt fyrirmælum til að halda vinnunni áfram.

Ræðum efnisvinnustofu

EINFALDARI VERKFERLAR

Frá handavinnu að sjálfvirkni

Fyrir teymi sem vilja finna hvar sjálfvirkni getur létt undir og móta fyrstu lausnina saman.

  • Teiknum upp einn verkferil eins og hann er í dag.
  • Veljum skref sem má einfalda eða sjálfvirknivæða.
  • Mótum lausn og prófum hugmyndina með sýnidæmi.

Þið takið með ykkur: kort af endurbættum verkferli og framkvæmdaáætlun fyrir eina sjálfvirkni. Uppsetning í rekstri er sérverkefni.

Ræðum verkferlavinnustofu

Sérsniðin vinnustofa fyrir ykkar teymi. Umfang, hópastærð, lengd og afurðir eru ákveðin fyrir fram. Tilboð er gert fyrir vinnustofuna í heild, með undirbúningi, leiðsögn og afhendingu vinnugagna.

Þátttakendur hafa með sér fartölvu og aðgang að þeim verkfærum sem eru ákveðin fyrir fram. Unnið er með sýnigögn eða gögn sem heimilt er að nota. Hugbúnaðaráskriftir og ferðakostnaður, ef við á, eru tilgreind sérstaklega í tilboði. Verð er gefið upp + vsk.

Skipuleggjum vinnustofu fyrir ykkar teymi

Sendu mér upplýsingar um hópinn og verkefnin sem þið viljið vinna með. Við mótum vinnustofu sem hentar ykkur.

Fá tilboð í vinnustofu

775-7221 · stefanatli93@gmail.com

Skoða ráðgjöf og innleiðingu →